Eiginleikar

Helstu eiginleikar í Vergo

Málaskrá

Mál eru miðpunkturinn í starfsemi notenda Vergo. Þegar þú býrð til nýtt mál gefur þú því heiti og Vergo úthlutar því númeri. Þú hefur möguleika á að tilgreina aðila máls, málaflokk og aðrar viðeigandi forsendur að vild, þar á meðal málskostnað, skjöl, verkefni og fleira.

Lögfinnur - Þinn aðstoðarmaður

Lögfinnur er háþróaður gervigreindaraðstoðarmaður fyrir lögfræðinga, hannaður til að tengja saman lög, reglur og dóma með áreiðanlegum heimildavísunum. Hann styður við lögfræðilega vinnu með því að veita skjótan og nákvæman aðgang að mikilvægum upplýsingum.

Gervigreindartengingar (MCP)

Tengdu Claude, ChatGPT og aðra AI-biðlara við Vergo. Gervigreindin getur stofnað og uppfært mál, skráð tíma og kostnað, búið til skjöl úr sniðmátum og sent í undirritun, haldið utan um verkefni, viðburði og kröfur, og leitað í réttarheimildum með sömu leit og Lögfinnur, alltaf með þínum heimildum.

Tíma- og kostnaðarskráning

Skráðu tíma, föst gjöld og útlagðan kostnað á mál með tillögum úr Outlook og gjaldskrá stofunnar. Taktu út vinnuskýrslur í PDF og Excel og gerðu reikninga beint úr skráningunum.

Skjalastjórnun

Vergo einfaldar ferlið við að halda utan um skjöl og útgáfur þeirra sem tengjast málum og verkefnum, allt saman á einum þægilegum stað. Með notendavænu viðmóti og öflugri leitarvél gerir Vergo þér kleift að leita hratt og auðveldlega að þeim skjölum sem þú þarft. Þetta sparnar tíma og eykur skilvirkni.

Rafrænar undirritanir

Með Vergo getur þú sent skjöl í rafræna undirritun með einföldum hætti, beint úr kerfinu. Hægt er að senda skjöl til þeirra sem eiga að undirrita og fylgjast með stöðu undirritana á einum stað. Því er ekki lengur þörf á sérstöku undirritunarkerfi til viðbótar við Vergo.

Verkefnastjórnun

Verkefnaborðið okkar er þar sem allt kemur saman. Það býður upp á skýra yfirsýn yfir öll verkefni, verkliði og fresti. Þetta tól er ekki bara yfirlitstæki, það er miðstöð þar sem samvinna og framvinda mætast.

Leitarvél fyrir réttarheimildir

Vergo inniheldur sérhæfða leitarvél fyrir réttarheimildir sem sameinar fjölbreyttan gagnagrunn af heimildum í eina yfirgripsmikla leitarvél. Með sögu lagasafnsins frá 1995 sérðu lögin eins og þau voru á hvaða degi sem er.

Tenging við bókhaldskerfi

Stofnaðu sölureikninga úr tímaskráningum beint í bókhaldskerfinu, með vinnuskýrslu sem viðhengi. Við tengjumst Payday, DK, Reglu, Business Central (Microsoft Dynamics 365) og Konto, en mælum með Payday.

Verkferlar

Hægt er að útbúa verkferla fyrir ákveðna málaflokka. Þannig leiðir kerfið þig í gegnum þau verkefni sem skilgreind eru í verkferlinu.

Viðskiptavinir og Gagnaðilar

Kerfið heldur utan um alla þína viðskiptavini og gagnaðila. Þannig er auðvelt að nálgast upplýsingar aðila og tengja þær við mál og verkefni. Hægt er að skrá marga viðskiptavini og gagnaðila á sama mál.

Sniðmát fyrir formasafnið þitt

Er orðið leiðinlegt að fylla ítrekað út sömu upplýsingarnar? Við höfum lausn á því! Við bjóðum upp á stuðning við færibreytur í Word (docx) skjölum og setjum inn allar helstu upplýsingar sem þú hefur þegar skráð í Vergo.

Greiningar

Allir starfsmenn geta með einföldum hætti tekið út tímaskráningu sína. Stjórnendur geta þar að auki fengið nánari greiningu yfir skiptingu tíma/tekna á starfsmenn, viðskiptavini eða málaflokka og ættu þannig að fá betri yfirsýn yfir tímaskráningar en ella.

Sérkjör viðskiptavina og afslættir

Hægt er að stilla til sérkjör fyrir ákveðin mál. Einnig er hægt að gefa afslátt af einstaka tímum eða festa afslátt á mál eða viðskiptavin.

Erlendir gjaldmiðlar

Ekkert mál er að gera upp í erlendum gjaldmiðlum og er það stillt niður á hvern viðskiptavin.

Aðvörun við hagsmunaárekstrum

Vegna þess að Vergo getur haldið bæði utan um viðskiptavini og gagnaðila þá varar kerfið við hagsmunaárekstrum ef þeir eru til staðar við stofnun nýs máls.

Innheimtukerfi

Innheimtukröfur á öllum innheimtustigum, bæði almennar kröfur og skuldabréf. Vextir reiknast sjálfkrafa eftir vöxtum Seðlabankans og innheimtuþóknun eftir gjaldskrá stofunnar. Vergo býr til bréfin, frá innheimtuviðvörun til kröfulýsingar í þrotabú, og gerir upp við kröfuhafa með skilagreinum.

Skaðabótakerfi

Skaðabótakerfi er heildstæð lausn til að halda utan um skaðabótakröfur, alla útreikninga og uppgjör. Kerfið heldur utan um allar forsendur og reiknar lokauppgjör, vaxta- og vísitölureiknað með sjálvirkt uppfærðum vöxtum og vísitölum.

Verkferlar fyrir slysamál

Við getum látið fylgja með verkferla fyrir slysamál og aðstoðum ykkur við að þróa þá að ykkar þörfum.

Tillögur að tímaskráningu

Vergo gefur tillögur að tímaskráningu út frá notkun. Tillögur Vergo vísa að jafnaði á mikinn fjölda tíma sem annars hefði gleymst að skrá og rukka.

Tenging við OneDrive (Sharepoint)

Tenging við OneDrive (Sharepoint) til að geyma öll skjöl. Þetta gefur þann möguleika að geta unnið í Office skjölum beint úr Vergo hvort sem það er í vefviðmóti eða í Office forritum á vélinni þinni. Auk þess býður OneDrive upp á möguleikann að tengjast beint við drif á tölvunni þinni, sem auðveldar enn frekar vinnslu og utanumhald skjala.

Tenging við Outlook

Tenging við Outlook (Office 365) til að fá uppástungur um tímaskráningu út frá dagatali og sendum/mótteknum pósti.

Tenging við dagskrá dómstóla

Tenging við dagskrá allra dómstóla sem tryggir að lögmenn geti séð komandi mætingar og málflutningsdaga.

Fleira væntanlegt...

Við erum að vinna að fullt af nýjum eiginleikum sem verða kynntar á næstunni.