Rafrænar undirritanir
Skjöl undirrituð beint úr Vergo
Allt ferlið á einum stað
Frá skjalinu á málinu til undirritaðs skjals í möppunni, án þess að hlaða niður og upp aftur.
Fullgild undirritun með Auðkenni
Undirritanir eru fullgildar rafrænar undirskriftir (QES) með rafrænum skilríkjum frá Auðkenni, í appinu eða með skilríkjum í síma. Þær hafa sama lagagildi og eigin hönd.
Beint úr skjalasafni málsins
Veldu PDF skjöl í skjalasafni málsins, hvort sem þau eru í SharePoint eða gagnageymslu Vergo, og veldu „Rafrænt undirrita“. Einnig má draga skjöl inn eða senda sniðmát beint í undirritun, Word-sniðmát breytast sjálfkrafa í PDF.
Mörg skjöl og margir undirritendur
Ein beiðni getur innihaldið mörg skjöl í þeirri röð sem þú velur og eins marga undirritendur og þarf. Undirritendur eru sóttir úr tengiliðum, eða þú stofnar nýjan tengilið á staðnum.
Undirrituð skjöl vistuð á málið
Þegar allir hafa undirritað vistast skjölin sjálfkrafa í möppuna „Undirritað“ á málinu, í SharePoint eða gagnageymslu Vergo. Undirritendur fá tölvupóst með hlekk til að sækja þau.
Yfirsýn yfir stöðu
Sjáðu allar undirritunarbeiðnir á einum stað, eða undir hverju máli fyrir sig, og síaðu eftir stöðu, viðtakanda, ábyrgðarmanni máls og dagsetningu. Þú sérð strax hver hefur undirritað og hver ekki.
Áminningar og breytingar
Sendu áminningu með einum smelli, bættu við eða fjarlægðu undirritendur og breyttu stillingum á meðan beiðnin er í ferli. Beiðni má afturkalla ef forsendur breytast.
Tilkynning þegar undirritun lýkur
Veldu hvaða starfsmenn fá að vita þegar allir hafa undirritað, með tölvupósti, tilkynningu í kerfinu eða hvoru tveggja.
Staðsetning undirskrifta
Veldu hvort áritun með nafni hvers undirritanda birtist efst eða neðst á fyrstu eða síðustu síðu, eða hvort undirskriftir sjáist eingöngu í undirritunaryfirliti skjalsins.
Einfalt fyrir undirritendur
Undirritendur þurfa ekki aðgang að Vergo, aðeins tölvupóst og rafræn skilríki.
Enginn aðgangur, ekkert forrit
Undirritandi fær tölvupóst með hlekk og undirritar í vafranum, í tölvu eða síma. Ekki þarf að stofna aðgang eða setja upp hugbúnað.
Skoðar áður en undirritað er
Undirritandi opnar og les hvert skjal áður en hægt er að undirrita það, og sér hverjir aðrir eiga að undirrita.
Á íslensku eða ensku
Undirritunarsíðan er á íslensku og ensku, svo erlendir aðilar geta líka undirritað.
Starfsmenn undirrita í Vergo
Ef starfsmaður er sjálfur meðal undirritenda getur hann undirritað beint úr Vergo, án þess að leita að tölvupóstinum.
Öruggt og rekjanlegt
Undirritanir sem standast skoðun, líka eftir mörg ár.
Auðkenning fyrir aðgang
Veldu fyrir hvern undirritanda hvort hlekkurinn í tölvupóstinum dugi til að opna skjölin, eða hvort hann þurfi fyrst að auðkenna sig með rafrænum skilríkjum. Undirritunin sjálf krefst alltaf rafrænna skilríkja.
Full saga beiðninnar
Hver atburður er skráður: hvenær beiðni var send, hver opnaði og skoðaði hvaða skjal, hvernig viðkomandi auðkenndi sig, hver undirritaði og hvenær.
Langtímagildi undirskrifta
Skjölin eru undirrituð samkvæmt PAdES staðlinum með tímastimpli og gögnum til langtímastaðfestingar, svo hægt er að sannreyna undirskriftirnar löngu eftir að skilríkin renna út.
Upplýsingar um hverja undirskrift
Fyrir hvert skjal sést hver undirritaði, hvenær og með hvaða skilríkjum, ásamt útgefanda og raðnúmeri skilríkjanna.
Aðgangsstýring
Heimildir í Vergo stýra því hverjir mega stofna, breyta og afturkalla undirritunarbeiðnir.
Svona virkar þetta
Skref 1: Veldu skjölin
Veldu PDF skjöl í skjalasafni málsins og smelltu á „Rafrænt undirrita“, sendu sniðmát í undirritun eða stofnaðu nýja beiðni og dragðu skjölin inn.
Skref 2: Bættu við undirritendum
Veldu undirritendur úr tengiliðum, skrifaðu skilaboð ef þú vilt og veldu hvar undirritað skjal á að vistast.
Skref 3: Undirritendur fá tölvupóst
Hver undirritandi opnar skjölin, les þau og undirritar með rafrænum skilríkjum. Þú fylgist með stöðunni í Vergo.
Skref 4: Skjölin vistast á málið
Þegar allir hafa undirritað vistast skjölin í möppuna „Undirritað“ og allir fá tölvupóst með hlekk á undirrituðu skjölin.
Spurningar og svör
Hvað kostar rafræn undirritun?
Rafrænar undirritanir eru innifaldar í Vergo Core. Fyrir hverja fullgilda undirritun og hverja auðkenningu með rafrænum skilríkjum bætist við notkunargjald vegna þjónustu Auðkennis, sjá verðskrá.
Hvaða skjöl er hægt að undirrita?
PDF skjöl. Word-sniðmát úr Vergo eru sjálfkrafa breytt í PDF þegar þau eru send í undirritun.
Þurfa undirritendur að vera með rafræn skilríki?
Já, undirritunin fer fram með rafrænum skilríkjum frá Auðkenni, annaðhvort í Auðkenni appinu eða með skilríkjum í síma.
Hvað gerist ef einhver gleymir að undirrita?
Þú sérð í Vergo hverjir eiga eftir að undirrita og getur sent þeim áminningu með einum smelli. Hlekkurinn í áminningunni er nýr og gildir í 30 daga.
Er hægt að hætta við undirritunarbeiðni?
Já, beiðni sem er í ferli má afturkalla. Þá geta undirritendur ekki lengur opnað skjölin eða undirritað þau.
Hvar geymast undirrituðu skjölin?
Í möppunni „Undirritað“ á málinu, í SharePoint eða gagnageymslu Vergo eftir því hvað þú velur. Þau eru líka aðgengileg í undirritunarbeiðninni sjálfri.
Við erum hérna til að hjálpa!
Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.
Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.
Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.
+354 581-1700
vergo@vergo.is
Hallgerðargötu 13 (3.hæð), 105 Reykjavík, Iceland