Tengingar

Tengingar við bókhaldskerfi

Þú getur tengt Vergo við þitt bókhaldskerfi og stofnað þannig sölureikninga beint í það kerfi sem þú notar ásamt vinnuskýrslu sem viðhengi.
Við mælum með Payday.

Payday

Þú velur í Vergo, um leið og þú gerir reikninginn, hvort hann er stofnaður sem drög eða sendur strax og hvort krafa fer í heimabanka. Tengingin krefst minnst áskriftarleiðarinnar „Þéttur“ hjá Payday.

Regla

Sölureikningar með vinnuskýrslu stofnaðir beint í Reglu.

DK

Bein tenging krefst dkPlus, sem DK selur sérstaklega. Reikningar stofnast óbókaðir svo þú getur farið yfir þá og bókað. Án dkPlus er hægt að senda bókaranum reikninga sem DK XML skrár í tölvupósti.

Dynamics 365 Business Central

Tengist með Microsoft innskráningu. Reikningslínur á fjárhagslykla eða vörur og sölumaður eftir kóða eða vídd.

Konto

Sölureikningar með vinnuskýrslu stofnaðir beint í Konto.

Af hverju að tengja bókhaldskerfið?

Frá tímaskráningu til sölureiknings án þess að slá neitt inn tvisvar. Tenging við bókhaldskerfi er innifalin í Vergo.

Engin tvískráning

Sölureikningar verða til úr óreikningsfærðum tímum, föstum gjöldum og útlögðum kostnaði á málinu og stofnast beint í bókhaldskerfinu. Ekkert þarf að slá inn aftur, sem sparar tíma og minnkar hættu á villum.

Vinnuskýrsla fylgir reikningnum

Vinnuskýrsla í PDF fylgir sölureikningnum sem viðhengi í bókhaldskerfinu, svo viðskiptavinurinn sér hvað liggur að baki reikningnum.

Engir tímar reikningsfærðir tvisvar

Tímar og kostnaður sem fara á reikning merkjast reikningsfærðir og fara ekki á annan reikning. Ef reikningi er eytt í Vergo verða færslurnar aftur óreikningsfærðar.

Viðskiptavinir stofnaðir sjálfkrafa

Greiðandi er fundinn eftir kennitölu í bókhaldskerfinu. Ef hann er ekki til getur Vergo stofnað hann með nafni, heimilisfangi, netfangi og síma (Payday, DK, Business Central og Konto).

Réttar vörur og virðisaukaskattur

Tímar, föst gjöld og útlagður kostnaður fara á sín vörunúmer eða fjárhagslykla, og útlagður kostnaður ber rétt vsk-hlutfall: 24%, 11% eða án vsk. Einnig er hægt að nota vörunúmer eftir starfsmanni.

Sundurliðun að þínu vali

Veldu hvort reikningurinn sýnir samantekt, tíma flokkaða eftir starfsmanni og taxta, eða hverja tímaskráningu með lýsingu. Línutextar fara á ensku til enskumælandi greiðenda.

Erlendir gjaldmiðlar

Reikningar eru gefnir út í gjaldmiðli greiðandans og gjaldmiðill og gengi fylgja reikningnum í bókhaldskerfið.

Payday reikningurinn í Vergo

Með Payday birtist númer reikningsins í Payday á reikningnum í Vergo og þú opnar reikninginn sjálfan sem PDF beint úr Vergo, án þess að fara inn í Payday.

Tenging eftir starfsmanni

Hver starfsmaður getur haft sína eigin bókhaldstengingu. Reikningurinn fer þá í bókhald ábyrgðarmanns málsins, annars í bókhald stofunnar. Hentar vel stofum þar sem lögmenn reka eigið bókhald.

Villur gripnar áður en sent er

Vergo kannar innskráningu, vörunúmer og sölumann í bókhaldskerfinu áður en reikningar eru sendir, svo vandamál koma í ljós strax en ekki á miðri leið.

Spurningar og svör

Hvaða bókhaldskerfi er hægt að tengja?

Payday, DK (dkPlus), Reglu, Microsoft Dynamics 365 Business Central og Konto. Einnig er hægt að senda reikninga sem DK XML skrár til bókarans í tölvupósti. Við mælum með Payday.

Kostar tengingin aukalega?

Ekki af hálfu Vergo, tenging við bókhaldskerfi er innifalin í Vergo, sjá verðskrá. Bókhaldskerfið sjálft þarf þó að leyfa tenginguna. Ekki fylgir hún öllum áskriftarleiðum og sum kerfi rukka sérstaklega fyrir hana, Hjá Payday þarf minnst áskriftarleiðina „Þéttur“ og bein tenging við DK krefst dkPlus sem DK selur sérstaklega. Kannaðu því hjá þínum þjónustuaðila hvort þín áskrift styður tengingu og hvort hún kostar aukalega.

Hvernig set ég upp tenginguna?

Undir Stillingar og Tengingar í Vergo. Fyrir Payday þarf Client ID og Client secret, fyrir DK API lykil úr dkPlus, fyrir Reglu notandanafn og lykilorð og fyrir Konto notandanafn og API lykil. Business Central tengist með Microsoft innskráningu. Starfsmenn með heimild til að breyta fyrirtækjatengingum geta sett hana upp, og við aðstoðum fúslega.

Fer reikningurinn strax til viðskiptavinarins?

Það ræðst af kerfinu. Í Payday velur þú hvort reikningurinn er stofnaður sem drög eða sendur strax. Í DK og Business Central stofnast hann óbókaður, svo þú getur farið yfir hann og bókað í bókhaldskerfinu.

Fer krafa í heimabanka greiðandans?

Já, ef þú vilt, með öllum bókhaldskerfunum. Með Payday velur þú það í Vergo þegar þú gerir reikninginn. Í hinum kerfunum er það stillt á viðskiptavininn í bókhaldskerfinu.

Hvað ef viðskiptavinurinn er ekki til í bókhaldskerfinu?

Greiðandi er fundinn eftir kennitölu. Ef hann finnst ekki getur Vergo stofnað hann sjálfkrafa í Payday, DK, Business Central og Konto. Það er stillingaratriði í tengingunni.

Get ég bakfært reikning?

Í Payday er hægt að bakfæra reikning beint úr Vergo, þá fellur krafan niður og Payday gefur út kreditreikning. Í öðrum kerfum eyðir þú reikningnum í Vergo og bakfærir hann í bókhaldskerfinu. Í báðum tilvikum verða tímarnir aftur óreikningsfærðir.

Er hægt að gefa út reikninga í erlendum gjaldmiðli?

Já, reikningurinn er gefinn út í gjaldmiðli greiðandans og gjaldmiðill og gengi fylgja honum í bókhaldskerfið.

Þarf ég að senda vinnuskýrsluna sérstaklega?

Nei, vinnuskýrslan fylgir sölureikningnum sem PDF viðhengi. Þú velur sjálfgefna stillingu í tengingunni og getur breytt henni þegar þú gerir reikning.

Hvað ef bókhaldskerfið okkar er ekki á listanum?

Notið þið DK án dkPlus getur Vergo sent bókaranum reikningana sem DK XML skrár í tölvupósti. Annars er alltaf hægt að gera reikninga og vinnuskýrslur í Vergo án tengingar. Hafðu samband ef þú vilt tengingu við annað kerfi.

Geta starfsmenn notað sitt eigið bókhald?

Já, hver starfsmaður getur haft sína eigin bókhaldstengingu. Reikningar fara þá í bókhald ábyrgðarmanns málsins en annars í bókhald stofunnar.

Við erum hérna til að hjálpa!

Þjónustusími

Þú getur hringt í okkur á virkum dögum kl 9-11 og 13-17.

Sendu tölvupóst

Þú getur sent okkur tölvupóst og við munum svara eins fljótt og hægt er.

Kíktu í heimsókn

Heyrðu í okkur ef þú vilt kíkja í heimsókn.

Sími

+354 581-1700

Email

vergo@vergo.is

Staðsetning

Höfðabakki 9, 110 Reykjavík, Iceland